Tinna Mark
Intersport-gengið
Myndasíðan mín :)
09.05.2006 19:23:29 / tinna_m

Nýtt blogg :)

Jæja, núna er ég loksins búin að fá mér nýtt blogg.. Ætla að athuga hvernig mér líkar það..

tinnamark.bloggar.is

- Ástar- og saknaðarkveðjur -


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 22:50:48 / tinna_m

Veika-Tinna

Hádlídúdlí :)

Jebb, ég kann að velja dagana til að vera veik! Bongó blíða úti og ég ligg uppi í rúmi eins illa gerður hlutur :( En sem betur fer á ég frábæran vin sem heitir Ólafur Páll Johnson sem lét mig fá lokaþættina í 3.seríu af One tree hill og næstsíðustu í The O.C. til að stytta mér stundir :haha: Takk Óli minn, bjargaðir deginum :) Sko við erum að tala um ROOOSALEGA þætti! Úff, ég er ekki ennþá búin að jafna mig! Og það eru 2 vikur í lokaþáttinn af the O.C... Allt allt of langt :(

Heyrðu, 9 dagar í fyrsta leik.. Sko tærnar á mér iða af spenningi.. Við byrjum á Valbjarnarvelli á móti Val.. Vona að maður sjái nú einhverja á vellinum.. Engin pressa ;)

Æi, ég ætlaði að skrifa eitthvað meira sniðugt en ég hreinlega nenni því ekki svo ég ætla bara að skella inn mynd.. Sagði ekki einhver að mynd segði meira en 1000 orð ;)

- Ástar- og saknaðarkveðjur -


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 22:25:49 / tinna_m

Ertu komin með kærasta?

Halló halló.

Eitthvað er ég nú orðin löt í blogginu þessa dagana :| Það er nú bara almenn leti og ekkert annað.. Engin afsökun!

En allavega.. ég var að ræða við hana Soffíu fótboltavinkonu mína í gær um lífið og tilveruna og leiddust samræðurnar út í umræður um stráka og kærasta eins og vill oft gerast þegar tvær stelpur ræða málin ;) Nema hvað að við vorum að tala um það hvað það væri eitthvað mikil pressa frá fólki í kringum mann að eiga kærasta.. Í hvert skipti sem maður hittir einhvern sem maður hefur ekki séð í einhvern tíma kemur alltaf spurningin: ,,Hva, ertu ekki komin með kærasta?" eða "Hvar er kallinn?" eða eitthvað í þá áttina.. og maður verður alltaf jafn vandræðalegur og svarar hálfniðurlútur: "Sko, ég á ekki kærasta.." eða lýgur og segir:  ,,Ég hef engan tíma fyrir svoleiðis.." 8| Þetta er alveg ótrúlega pirrandi að lenda í þessu því þetta minnir mann alltaf á það að maður eigi ekki kærasta og það væri kannski ágætt að gera eitthvað í þeim málum :$ Ég veit samt vel að fólk meinar nú ekki neitt illt með þessu.. Maður er kannski bara svona sár yfir þessu af því að manni langar í kærasta :$ Það er nú samt ekki eins og maður sé að reyna að finna sér ekki kærasta.. Þeir bara vaxa ekki á trjánum sjáiði til.. Það að það sé nóg af fiskum í sjónum er bara ekki svo rétt eftir allt ;)

En jæja, núna er ég bara farin að hljóma eins og bitur piparjónka svo ég ætla að hætta í bili :)

- Ástar- og saknaðarkveðjur -


» 15 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 22:01:20 / tinna_m

Myndir frá Portó...

Sælar.

Er að henda inn nokkrum myndum frá Portúgal sem ég tók fyrstu þrjá dagana.. Átti myndir á tölvunni hjá Huga sem ég hafði losað út af myndavélinni áður en henni var stolið :^)

- Ástar- og saknaðarkveðjur -


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 00:13:57 / tinna_m

Þær eiga afmæli í dag... :)

Já, Ásan mín og Dóran mín eiga afmæli í dag.. 21 baby :)

Til hamingju englarnir mínir :*

- Ástar- og saknaðarkveðjur -


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 01:04:00 / tinna_m

Litla prinsessan Dodda og Guðnýjar :)

Ég var að eignast litla sæta frænku :D Doddi (bróðir hennar mömmu) og Guðný konan hans fengu stelpu í gærkvöldi :) Sjáið hvað hún er sæt.. Alveg eins og Tinna frænka sín ;) Mér finnst eiginlega að hún ætti að heita Tinna.. Hvað finnst ykkur? ;)

Hér er hún með Árna Hauk stóra brósa :)

Innilega til hamingju með litlu prinsessuna Doddi og Guðný :)

- Ástar- og saknaðarkveðjur -


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 15:42:21 / tinna_m

Gleðilega páska :)

Gleðilega páska englarnir mínir. Hafið það rosa gott í dag :D

- Ástar- og saknaðarkveðjur -


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 22:18:46 / tinna_m

Sigló, ó Sigló, ég sé þig í anda....

Góða kvöldið..

Ójá ójá, ég er að fara heim á morgun.. Burtu úr Reykjavíkurstressinu.. Heim í fallegasta fjörð í heimi.. Þar sem sólin skín alltaf, fuglarnir syngja og vindar blása ei ;) Heim til Siglufjarðar :) SWEEEEEEEEET!!!! :) Við erum að tala um það að ég er að fara í mömmumat, pabbi er að fara að tuska mig til í ræktinni og ég er að fara að knúsa bróðir minn í drasl :)

Lítur einhvern veginn svona út þessa dagana.. :)

- Ástar- og saknaðarkveðjur -


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 18:28:24 / tinna_m

Föstudagur.. sweeet :)

Stjarnan - KR í Egilshöll kl 21:00.. Allir að mæta :) Síðan er það bara Hressó eftir leik að hlusta á Gotta og Eisa.. Allir að mæta þangað líka :)

- Ástar- og saknaðarkveðjur -


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 16:56:49 / tinna_m

Seasons of Love

Five hundred twenty-five thousand
Six hundred minutes,
Five hundred twenty-five thousand
Moments so dear.
Five hundred twenty-five thousand
Six hundred minutes
How do you measure, measure a year?

In daylights, in sunsets, in midnights
In cups of coffee
In inches, in miles, in laughter, in strife.

In five hundred twenty-five thousand
Six hundred minutes
How do you measure
A year in the life?

How about love?
How about love?
How about love? Measure in love

Seasons of love. Seasons of love


Five hundred twenty-five thousand
Six hundred minutes!
Five hundred twenty-five thousand
Journeys to plan.

Five hundred twenty-five thousand
Six hundred minutes
How do you measure the life
Of a woman or a man?


In truths that she learned,
Or in times that he cried.
In bridges he burned,
Or the way that she died.


It's time now to sing out,
Tho' the story never ends
Let's celebrate
Remember a year in the life of friends
Remember the love!
Remember the love!
Seasons of love!


Oh you got to got to Remember the love! remember the love,
You Measure in love know that love is a gift from up above Seasons of love.
Share love, give love spread love Measure measure you life in love.


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 00:16:00 / tinna_m

Tár, bros, (sviti) og takkaskór

Nenna allir sem lesa þetta að senda mér sms með símanúmerinu sínu? Takk elskurnar :)

Sælir aftur vinir.

Þá er maður kominn heim úr sólinni og verð ég að segja að ég hefði alveg verið til í að vera pínu lengur .. En svona er þetta bara :)

Ég nenni ekki alveg að skrifa alla ferðasöguna en ég ætla að nefna það helsta..

Við komum út síðasta laugardag (25.mars) um kvöldið þannig að það var lítið gert annað en að fá sér eina góða pizzu og svo bara skellt sér í háttinn. Á meðan við vorum að éta fékk ég hringingu frá Íslandi og í gegnum símann hljómaði One með U2 og voru það þeir bræður Gotti og Eisi sem sungu og spiluðu.. Takk æðislega strákar, þetta var æði :)

Við æfðum 11 sinnum á meðan við vorum úti plús það að spila einn æfingaleik sem við unnum 9-0 :) Það var náttúruleg ekki leiðinlegt að vera að æfa í 20 stiga hita og sól á venjulegu grasi.. Það var eiginlega of heitt að vera í topp og stuttbuxum :) En það voru margar góðar keppnir á æfingum úti og ber þar hæst að nefna Brúnkur vs. Ljóskur sem endaði með sigri þeirra fyrrnefndu 3-2 eftir æsispennandi leik :) Vill þakka ljóskum fyrir góðan og drengilegan leik.

Við leigðum okkur vespur annan daginn sem við fengum svo að hafa allan tímann og var það vægast sagt snilld.. Við fórum á þeim út um allt og vöktum mikla athygli.. Enda algjörir viðvaningar :) Tókum líka skemmtilega vespurúnta þar sem við misþyrmdum hringtorgum ;)

Þótt þetta hafi fyrst og fremst verið æfingaferð þá fengum við að djamma 2 kvöld og var það allt of gaman :) Við í bleika húsinu vorum partý haldararnir í þessari ferð og held ég að við höfum klárlega verið með þetta. Ræstingarkonurnar voru ekki alveg jafn hrifnar :$ Allavega komu víkingsstrákarnir og nokkrar þróttarastelpur í partý og var þvílíkt stuð á liðinu.. Það var dansað uppi á borði og jackað á hinu og þessu.. Mikill sviti í gangi :) Kl 12 þurftu svo strákarnir að fara heim(vegna agabrots kvöldið áður..) og héldum við þá niður í bæ, ásamt reyndar Kára og Sölva enda atvinnumenn þar á ferð bæði í fótbolta og djammi ;) En við fundum einhvern stað og tókum yfir hann og dönsuðum eins og aldrei fyrr.. Hugi hafði líka tekið með sér disk með "Til hamingju Ísland" og hélt ég að allt ætlaði að verða vitlaust þegar það hljómaði á staðnum enda höfðum við ekki hugmynd um að Hugi hefði komið með diskinn :)

Á föstudagskvöldið var svo lokadjammið og má segja að það hafi svo sannarlega verið viðburðarríkt.. Eg ætla ekki að telja allt upp..Bara svona þetta helsta..

Kvöldið byrjaði hjá okkur Stjörnustelpum á Fabios sem er veitingastaður í gamla bænum.. Þar er hægt að fá alls konar villt dýr eins og antilópur, kengúrur, krókódíla, strúta og fleira.. Ég fékk mér antílópu og smakkaði strút hjá Huga og þetta var þvílíkt gott.. Antilópukjöt er held ég bara besta kjöt sem ég hef smakkað.. Þegar við vorum búnar að borða var svo haldið í bleika húsið í partý sem stóð langt fram á nótt.Víkingsstrákar og Þróttarastelpur voru aftur mætt og var þvílíkt stuð á fólki fram á nótt.. Um 3-leytið var svo haldið niður í bæ þar sem við ætluðum á skemmtistað sem heitir Kiss en þegar þangað var komið vildu dyraverðirnir ekki hleypa Huga inn.. Alveg sama hvað við reyndum.. Þetta endaði með því að við fórum öll.. reyndar eftir að við vorum búin að taka svitalagið á lögguna og 2 ungar dömur tóku sig til og byrjuðu að "jacka" löggubílinn.. Baara fyndið.. Síðan fóru flestir á annan skemmtistað en ég ákvað ásamt nokkrum öðrum að fara til baka í bleika húsið.. Hefði betur sleppt því vegna þess að á leiðinni heim var rænt af mér veskinu mínu..:( Sem betur fer voru nokkrar hetjur þarna með mér sem hlupu á eftir gaurnum og náðu að hræða hann þannig að hann henti frá sér töskunni..  Síðan var það hann Jón bóndi sem fann töskunni í einhverjum runna og voru kortin í henni sem betur fer.. Myndavélin og síminn voru því miður horfinn :( Í öllum látunum höfðu samt Höddi og Andri hlaupið á vegg og Höddi verið bitinn af hundi.. En ég var voðalega þakklát fyrir að hafa þessi yndi þarna með mér.. Valur, Höddi, Andri, Jón, Sölvi, Ella .. takk elskurnar :*

Að lokum ætla ég bara að nefna nokkra punkta um ferðina..

  • "Jack" var klárlega málið í þessari ferð.. Það voru ekki margir hlutir sem sluppu "ójackaðir" úr ferðinni :)
  • Sviti.. Þetta var sveitt ferð og svitalagið var án efa lag ferðarinnar.
  • Víkingsstrákarnir.. Bara snillingar og þokkalega heitir gaurar ;) Ég er sko til í að skemmta mér með þeim hvenær sem er..
  • Dagný, Rúna, Sif og Anna Begga.. Þróttarastelpur sem voru með etta :)
  • Frogs, besti pizzastaður í heimi og án efa með besta starfsfólk í heimi.
  • Vespur.. Ómissandi í svona ferð..
  • Toggi.. Hann er alltaf jafn flottur þótt hann sé orðinn 47 ára gamall kallinn.. Takk Toggi minn.. Þú ert sko klárlega líka ómissandi í svona ferð.
  • Sólin var með etta og skein skært allan tímann ;)
  • Olían var misnotuð  í ferðinni.. Enda verið að "vörka" tanið ;)
  • Þjálfarnir.. Yndislegir.. Án efa bestu þjálfarar í heimi :)
  • Bleika húsið. HÚSIÐ í ferðinni :) Frábærar stelpur sem kunnu sko að halda partý. Takk fyrir samveruna dúllurnar mínar.. Alltaf til í að bua með ykkur :)

Jæja, ég er orðin þreytt.. Er að gleyma fullt af hlutum en ég bæti því þá bara við seinna.. Eða bara ekki ;) Ap lokum vil ég bara þakka öllum sem voru þarna með mér fyrir æðislega ferð.. Love u all ógeðslega much skilurru ;)

- Ástar- og saknaðarkveðjur-


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 18:48:05 / tinna_m

Portúgal.. hér kem ég :)

Jæja elskurnar mínar.. Núna er ég komin í gott skap aftur.. Ekkert nema bros á vör sem kemur til greina :)

Ég ætla að skella mér til Portúgal á morgun með stjörnuhlunkunum mínum í æfingaferð svo þið verðið bara að sakna mín á meðan.. Ég veit að ég mun sakna ykkar... En ég lofa að ég skal hugsa til ykkar allra þegar ég ligg í sólbaði ;)

Jebb, hér verð ég á morgun! Sweeeet :)

Ég treysti á að Kanturinn og fleiri haldi uppi stemmaranum á Hressó á laugardaginn fyrst að ég kemst ekki.. Hvet alla til að mæta og hlusta á hina yndislegu bræður, Gotta og Eisa, spila og syngja :)

Hafið það sem allra best sykurpúðar.. Eins og hún góðvinkona mín Silvía myndi orða það.. Love u ógisslega much skilurru ;)

- Ástar- og saknaðarkveðjur -


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 23:13:40 / tinna_m

Neikvæðni.is

Jæja, ég nenni ekki að blogga þessa dagana.. ég er svo neikvæð og það nennir enginn að lesa neikvætt blogg.. Svo ég þarf hvatningu til að blogga aftur... Vonandi lagar sólin í Portúgal þessa neikvæðni í mér...

- Ástar- og saknaðarkveðjur -


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 18:00:15 / tinna_m

Bara brosa :)

Það sem bros getur ekki gert ;)

 Yljað okkur um hjartarætur...

 Fengið okkur til að hlægja...

 Skemmt okkur...

 Brætt okkur...

Svo það er bara að brosa :haha:

- Ástar- og saknaðarkveðjur -


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 12:22:16 / tinna_m

Flensan :(

Hádí.

Crap, var búin að skrifa MEGA langa færslu og rakst svo í einhvern takka og allt datt út :cry: Ó jæja, ég hef hvort eð er ekkert að gera.. Skrifa bara aftur :)

Jújú, miss flensa er búin að ná mér eins og öllum öðrum landsmönnum.. Búin að vera veik síðan á mánudaginn! Ákvað reyndar á miðvikudagsmorguninn að ég væri bara alveg nógu hress til að skella mér á morgunæfingu og í vinnuna 8| Fékk það auðvitað í hausinn og sló niður í gær og verri núna.. Er ekki búin að finna neitt bragð í 2 daga og þar af leiðandi ekkert búin að éta í sólarhring!! En ég lifi :)

En ég er búin að vera að horfa svolítið mikið á sjónvarpið núna.. Meistaradeildin á fullu og svo auðvitað idolið... og þessu fylgir alveg heill hellingur af auglýsingum.. Það sem mér finnst svo merkilegt er það hvað auglýsingar eru orðnar góðar í dag.. Þetta er ekki lengur bara einhver pirrandi gaur að reyna að troða einhverju inn á mann með lélegum söluaðferðum.. Nei nei, þetta er bara hreint og beint skemmtiefni.. Eins og t.d. Lotto-auglýsingarnar.. Þær eru náttúrulega bara drepfyndnar.. Og svo nýja kókauglýsingin þar sem nördagaurinn er að brosa framan í alla :haha: Ekki má gleyma nýju Olís- auglýsingunni með litla krúttlega smámælta stráknum sem heitir ekki Siggi.. Hann heitir Louis Garcia :haha: Svo er það ein besta auglýsing sem ég hef nokkurn tímann séð.. Það var þarna gsm auglýsingin þegar gellan er hætta með kærastanum og hann fer að gráta í fanginu á mömmu sinni..  Hún er náttúrulega BARA fyndin :) Ég veit ekki hvort ég sé sú eina sem er að fíla þessar auglýsingar.. ég vona allavega ekki :) En ég hef reyndar alltaf haft mjög gaman að auglýsingum.. Þegar ég var lítil var ég mjög ofvirk og gat aldrei setið kyrr.. Svo þegar mamma og amma voru að þrífa og baka fyrir jólin, var ég mjög mikið fyrir.. :$ En það var eitt sem fangaði allaf athygli mína og fékk mig til að hætta að hlaupa en það voru einmitt auglýsingar.. Svo hún móðir mín tók upp á því að taka upp auglýsingar og á þær horfði ég á meðan þær bökuðu.. Og ég varla andaði á meðan mér fannst þær svo spennandi :) Ég á kannski ekkert að fara í sjúkraþjálfun.. Auglýsingabransinn er kannski bara málið ;)

En fyrst ég er byrjuð að segja sögur af sjálfri mér hérna þá get ég alveg tekið eina í viðbót ;) Þegar við bjuggum í Garðinum (pabbi var að spila með Víði í Garði) þá var ég held ég tveggja ára.. Man ekki alveg.. Allavega.. Þá bjuggum við rétt hjá bryggjunni og einhveju iðnaðarsvæði eða eitthvað.. það voru allavega allaf stórir vörubílar að keyra framhjá.. Eins og ég var að segja áðan þá var ég mjög mikið fiðrildi og vildi alltaf hlaupa yfir götuna.. Svo foreldrar mínir tóku upp á því að binda mig við staur í garðinum :haha: Ok, það hugsa margir núna, eru þau eitthvað rugluð.. En málið var að þau höfðu bandið bara það langt að ég gat hlaupið um allan garð en ekki út á götu :)

Já, gaman að þessu.. Hefðuð þið ekki viljað eiga mig fyrir barn ;)

Heyrðu, ég ætla að fara að hætta þessari vitleysu :) Ein góð mynd hérna í lokinn.. Muniði eftir þessari SNILLDAR mynd? (Ég veit að Dagný og Gunna gera það ;) )

- Ástar- og saknaðarkveðjur -


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10